Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Landsfundur Samfylkingarinnar 27.- 29.mars

img_7685 

Guðbjartur var einn þingforseta, í stjórn málefnahóps um velferð og tók þátt í pallborðsumræðum.

Landsfundur Samfylkingarinnar var haldinn í Smáranum sl. helgi og var einn sá fjölmennasti frá upphafi.  Þar ríkti gleði og góður andi sem náði hámarki þegar Jóhanna Sigurðardóttir og Dagur B. Eggertsson tóku við nýjum hlutverkum sínum í stjórn flokksins.  Jóhanna kom því vel til skila að hún væri enginn bráðabirgðaformaður eins og pólitískir andstæðingar hafa verið að gaspra um.  Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fráfarandi formaður flokksins kvaddi að sinni en vonandi aðeins um stundarsakir.

Þrátt fyrir að skiptar skoðanir væru um ýmsar samþykktir, var ekki annað að sjá en lýðræðið virkaði vel.

Evrópumálin voru umfangsmikil og ánægjulegt að Samfylkingin tók það skref að lýsa yfir stuðningi við inngöngu Íslands í Evrópusambandið.

 


Tillaga: Sáttagjörð um fiskveiðistefnu

 

Málefnanefnd 6

Undirhópur um sjávarútvegsmál                                                          Þingskjal 2.6.1.2.

 

Tillaga til nefndarinnar:

 

Sáttagjörð um fiskveiðistefnu

 

Í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands  verði fiskveiðistefnan strax að loknum kosningum endurskoðuð í þeim tilgangi að skapa sátt við þjóðina um nýtingu auðlinda hafsins.

 

 

Markmið stefnunnar er:

  • Að tryggja eignarhald og fullt forræði þjóðarinnar yfir auðlindum hafsins.
  • Að stuðla að atvinnusköpun og hagkvæmri nýtingu fiskistofna.
  • Að uppfylla skilyrði um jafnan aðgang að veiðiheimildum og uppfylla þar með kröfur mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
  • Að auðvelda nýliðun í útgerð.
  • Að tryggja þjóðhagslega hagkvæma og sjálfbæra nýtingu fiskistofna.

Aðgerðir til að ná þessum markmiðum:

  • Þjóðareign á sjávarauðlindum verði bundin í stjórnarskrá með samþykkt þess stjórnarfrumvarps sem nú liggur fyrir Alþingi. Markmið slíks ákvæðis um þjóðareign er að tryggja þjóðinni ótvíræð yfirráð allra sjávarauðlinda til framtíðar og fullan arð af því eignarhaldi.
  • Stofnaður verður Auðlindasjóður sem sjái um að varðveita og ráðstafa fiskveiðiréttindum í eigu þjóðarinnar.
  • Arður af rekstri Auðlindasjóðs renni einkum til sveitarfélaga og verði einnig notaður til annarra samfélagslega verkefna, s.s. haf- og fiskirannsókna. Kannaðir verði kostir þess að fela Auðlindasjóði jafnframt umsýslu annarra auðlinda í þjóðareign og felur fundurinn framkvæmdarstjórn að skipa starfshóp sem útfærir nánar tillögur um Auðlindasjóð.
  • Allar aflaheimildir í núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi verði innkallaðar eins fljótt og auðið er og að hámarki á 20 árum.
  • Framsal aflamarks í núgildandi aflamarkskerfi verði einungis miðað við brýnustu þarfir.
  • Auðlindasjóður bjóði aflaheimildir til leigu. Greiðslum fyrir aflaheimildir verði dreift á það ár sem þær eru nýttar á. Framsal slíkra aflaheimilda er bannað. Útgerðum verði gert skylt að skila þeim heimildum til Auðlindasjóðs sem þær ekki nýta.
  • Frjálsar handfæraveiðar verði heimilaðar ákveðinn tíma á ári hverju. Sókn verði m.a. stýrt með aflagjaldi sem lagt verði á landaðan afla.

8.      Stefnt verði að því að allur fiskur verði seldur á markaði.

 

Jafnframt er því eindregið beint til stjórnvalda að þau hlutist til um að þar til ný stefna taki gildi ráðstafi fjármálastofnanir á vegum ríkisins ekki aflaheimildum án þess setja skýra fyrirvara um endurskoðun slíkra samninga til samræmis við þá stefnu sem að framan er lýst.


Myndir frá úrslitum prófkjörs

IMG_8983 IMG_8984

IMG_8985 IMG_8986

IMG_8988 IMG_8989

IMG_8990 IMG_8991


Arabísk matargerð

Fimmtudaginn 12. mars fór ég ásamt fleira góðu fólki og lærði að elda arabískan mat í Rauða krossi Íslands Akranesdeild. Kennarinn var  Wafaa frá Palestínu.

Hér eru uppskriftirnar: 

Hummus

1 dós niðursoðnar kjúklingabaunir

3 msk. Thainismjör

1 hvítlauksrif

Salt á hnífsoddi

Allt sett í matvinnsluvél og hrært vel saman.  Að lokum er hummusnum smurt á disk, smá ólífuolíu skvett yfir og ólífur settar út í til skrauts. Borið fram með góðu brauði. 

 

Arabísk kartöflumús

½ kíló af kartöflum soðnar í potti. Að því loknu eru kartöflurnar settar í kalt vatn og flysjaðar. Síðan settar í matvinnsluvél. 1 búnti af myntu bætt út í ásamt 4 rifjum af hvítlauk. Mixað í matvinnsluvél  í u.þ.b. 5 mínútur.Sett á disk, smá ólfíuolíu slett yfir til skreytingar og borið fram. 

 

Falafel

500 gr. Kjúklingabaunir (lagðar í bleyti í 24 stundir).

1 laukur

4 hvítlauksrif

1 matskeið cummin

1 matskeið Arabískar nætur

2 búnt steinselja

Salt eftir smekk

2 matskeiðar matarsódi

Kjúklingabaunirnar eru hakkaðar x2 í hakkavél. Allt hráefnið látið fara í gegnum hakkavélina. Kryddi og matarsóda bætt út í og hnoðað saman þar til orðið mátulega fast í sér. Sett í plastpoka og látið bíða í 15 mínútur. Athugið að ef ætlunin er að geyma deigið og steikja seinna er matarsódinn ekki settur út í fyrr en rétt fyrir steikingu.Þegar deigið er tilbúið eru búnir til úr því litlir klattar og þeir djúpsteiktir á pönnu.  Borði fram með góðu brauði og sósu eftir smekk (t.d. Gunnars Sinneps- eða Mangó- og karrýsósu). 

 

Kebab

500 gr. Kjöthakk (kinda/nauta/svína)

1 laukur, saxaður smátt

¾ matskeið karrý

1 teskeið hvítlaukspipar

1 teskeið Arabískar nætur

1 búnt steinselja

Salt eftir smekk

1 bolli hveiti

Vatn

 

 Hvítlauks/myntusósa

1 bolli AB mjólk

1 - 2 hvítlauksrif

1 - 2 matskeiðar mynta

 Öllu hnoðað saman í skál þar til deigið er orðið mátulega þétt. Sett í plastpoka og látið bíða í 40 - 60 mínútur. Djúpsteikt á pönnu. Borið fram  með Hvítlauks/myntusósunni og góðu brauði. 

 

Addish - linsubaunasúpa sem mikið er borðuð í Ramadan mánuði 

500 gr. Rauðar linsubaunir

1 pakki núðlusúpa

1 laukur

Salt

Skvetta af ólífuolíu

Skvetta af sítrónusafa

Linsubaunirnar eru settar í pott og vatni bætt út í - athugið að vatnið á að fljóta rétt fingurbreidd yfir baunirnar. Suðan látin koma upp við vægan hita. Hafið pottinn lokaðan og láti malla þar til vatnið hefur gufað upp. Þá er bætt út í u.þ.b tveimur bollum af sjóðandi vatni. Salti, núðlum (a.t.h að nota ekki kryddið sem fylgir með í pakkanum), olífuolíu og sítrónusafa bætt út í. Laukurinn saxaður smátt og brúnaður á pönnu. Síðan bætt út í súpuna. Látið malla í 15 mínútur. Borið fram með góðu brauði

 

2665_1036039506627_1394640420_30121085_7003370_s2665_1036039666631_1394640420_30121088_7627388_s2665_1036039786634_1394640420_30121091_7318735_s2665_1036039866636_1394640420_30121092_6893273_s


Takk fyrir stuðninginn – nú sækjum við fram


Vegna anna á Alþingi og fundahalda gaf ég mér aldrei tíma til að þakka félögum í Samfylkingunni í NV-kjördæmi þann mikla stuðning sem þeir veittu mér í prófkjörinu fyrir viku.   Ég er himinlifandi að hljóta traust meira en 70% þeirra sem tóku þátt, en þátttakan var betri en víða annars staðar á landinu, en það gleymist að prófkjörið var aðeins opið flokksbundnu Samfylkingarfólki.  Alls 771 veittu mér sitt atkvæði og þar af 601 í fyrsta sætið, en alls greiddu 854 atkvæði í prófkjörinu. Ég vil þakka öllum þeim sem studdu mig um leið og ég hvet alla til að standa saman í komandi átökum.  Ég þakka meðframbjóðendum mínum heiðarlega baráttu.  Nú þarf allar vinnufúsar hendur til verka ef  við eigum að ná góðum árangri 25. apríl n.k.

Ég vil einnig þakka kjördæmisráði, kjörnefnd og trúnaðarmönnum fyrir óeigingjarnt starf við prófkjörið sem og kosningastjóranum okkar, Þórhildi Ólafsdóttur.


Sífellt fleiri niðurstöður fást úr prófkjörum og uppstillingum á lista í kjördæmum landsins.
Tekist er á um endurnýjun og þá hugmynd að nýta áfram reynslu þingmanna.  Svo virðist sem bland af hvoru tveggja sé það sem flokksfélagar Samfylkingarinnar vilja og í NV-kjördæmi virtist jafnframt ríkur vilji fyrir því að tryggja konum framgang, bæði með setningu reglna um paralista en einnig með því að kjósa konur í efstu sæti.


Ég ákvað að bjóða mig fram, þar sem mér fannst ég rétt að byrja mín störf sem þingmaður.  Ég gaf kost á mér fyrir tveimur árum og ætlaði að gefa mér góðan tíma til að komast inn í mál og starfsaðferðir þingsins.  Ég fékk skemmtileg verkefni sem formaður félags- og tryggingamálanefndar, og sem fulltrúi í menntamála- og fjárlaganefnd og mörg verkefni náðu fram að ganga á fyrsta árinu, einkum í málefnum barna- og unglinga, skólalöggjöf og í fjárveitingum til fjölmargra góðra mála í kjördæminu.  En allir þekkja atburðarásina, hrun bankanna, fjármálakerfisins og eftirlitsstofnana og um leið hrun hugmyndafræði frjálshyggjunnar.  Í kjölfarið var ákveðin upplausn í samfélaginu sem leiddi til ríkisstjórnarslita og myndun minnihlutastjórnar um leið og ákveðið var að  boða til Alþingiskosninga til að gefa kost á nýju fólki eða til að sækja nýtt umboð til kjósenda.  Við þessar aðstæður stýri ég þinginu sem þingforseti og leita sátta um framgang mála í þessu nýju umhverfi.


Nú er að sjá hvort þjóðin okkar velur að gefa þeim valdaflokkum frí frá stjórn landsins, sem komu okkur fyrst og fremst í þessi vandræði með hugmyndafræði sinni, gjafakvóta, einkavæðingu, nánast gjöf bankanna til vildarvina, rangri peningastjórn og með hugmyndafræði óhefts frelsis fjármagnseigenda og forgangsröðun í þágu hinnar ríku.  Inn í þetta umhverfi, sem var í boði framsóknarflokksins og þó einkum sjálfstæðisflokksins, kom Samfylkingin, settist í ríkisstjórn með sjálfstæðisflokknum og uggði ekki að sér, treysti um of á stofanir eins og Seðlabanka og Fjármálaeftirlit, sem var eflt, og náði ekki að bjarga efnahagslífinu og koma í veg fyrir hrun bankanna.  Á því berum við ábyrgð og getum aðeins beðist afsökunar á værð okkar og aðgerðarleysi.  Þegar bankarnir höfðu hrunið brást Samfylkingin hratt við en nú vitum við af biturri reynslu að það þarf meiri drift og dugnað en Sjálfstæðisflokkurinn hafði þegar út í erfiðleikana var komið.  Ákvörðunarfælni þessa stóra flokks þvældist fyrir, eða kannski voru það hagsmunatengslin sem seinkaði öllum ákvörðunartökum.


Sífellt kemur betur og betur í ljós hvernig persónulegir, fjárhagslegir og flokkslegir hagsmunir ákveðinna flokka fléttuðust saman í órofa heild spillingar.  Til að fletta ofan af þessu þarf að gefa þessum gömlu valdaflokkum frí eftir kosningar, og til að ná því markmiði þarf að efla Samfylkinguna.

Ég fer óhræddur til kosninga með grunngildi Samfylkingarinnar að leiðarljósi um lýðræði, jafnrétti og réttlæti.  Nýtt og betra Ísland verður að byggjast á þessum gildum, gömlu góðu gildum jafnaðarstefnunnar, þar sem markaðurinn er auðmjúkur þjónn þjóðarinnar en ekki öfugt.


Kveðja til Karls V. Matthíassonar


Mér barst tilkynning frá Karli um úrsögn hans úr Samfylkingunni og innritun í Frjálslynda flokkinn með hóp pósti en fyrst með tilkynningu á Alþingi.  Þessi ákvörðun hans kom mér á óvart, enda vann hann hetjulega annað sæti í prófkjöri fyrir tveimur árum og máttu þá aðrir víkja fyrir honum og létu þar við sitja en nú var hann fórnardýr prófkjörs og unir því ekki.  Það kom mér á óvart.  Prófkjörið snérist ekki gegn Karli, en með öðrum, en fyrir mér er mikill munur á þessu tvennu.  Ég hef hvergi beitt mér gegn Karli og raunar ekki hitt neinn sem gerði það.  Almennt er vel talað um hann,  góður vinur og félagi, en greinilega telja félagar í Samfylkingunni, sem tóku þátt í prófkjörinu, aðra betri til að bera fram stefnu flokksins í NV-kjördæmi.

Karl velur að tilgreina sem ástæðu úrsagnar úr Samfylkingunni að málefnum sem hann standi fyrir hafi þar með verið hafnað.
Hann skrifar eftirfarandi í fréttatilkynningu 13. mars s.l.:


„Ég hef ákveðið að ganga til liðs við Frjálslynda flokkinn.

Ákvörðun þessi helgast af því að skoðanir mínar og hugsjónir um sjávarútvegsmál á Íslandi eiga ríkan hljómgrunn í Frjálslynda flokknum.“ ...

... „Ein meginástæða þess að ég hóf opinbera þátttöku í stjórnmálum er löngun mín til þess að sjá fiskveiðistjórnunarkerfinu breytt því það er að mínu mínu mati ranglátti og felur í sér mikla mismunun.  Jafnframt er ég  þeirrar skoðunar að fyrirkomulag þessa kerfis eigi stóran þátt í þeim vanda sem þjóðin glímir nú við. Eitt  mikilvægasta verkefni í endurreisn landsins er að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu á þann veg að arður þessarar auðlindar komi þjóðinni betur til góða en nú er og skapi um leið fleiri atvinnutækifæri.“


Það er leitt að Karl upplifi að prófkjörið hafi snúist um afstöðu hans til sjávarútvegsstefnu Samfylkingarinnar en hann lætur um leið í veðri vaka að enginn annar í Samfylkingunni hafi borið stefnuna fram né geti gert það.  Hið rétta er að sjávarútvegsmálin hafa verið í höndum Karls, ég hef t.d. vikið í umræðunni til að gefa honum meira svigrúm og athygli og tekið undir með með honum í flestum atriðum.  Karl leiddi málaflokkinn sem varaformaður í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd og um leið sem formaður málefnahóps Samfylkingarinnar um sömu mál.  Ég vissi ekki annað en að sátt væri um sjávarútvegsstefnuna sem Karl hefur m.a. stutt.  Samfylkingin ein fárra flokka hefur haft heilsteypta stefnu í málaflokknum, m.a.  byggða á tillögum okkar ágæta félaga Jóhanns Ársælssonar.  Ég veit ekki til að stefnu flokksins hafi verið breytt.
Tillögur eða tillöguleysi Samfylkingarinnar í þessum málaflokki eru fyrst og fremst á ábyrgð Karls og varla sanngjarnt að kenna öðrum um, þar sem hann átti að vera talsmaður okkar. Hagsmunir íbúa Norðvesturkjördæmis, bæði til sjós og lands, munu áfram verða leiðarljós Samfylkingarinnar í kjördæminu og af meiri krafti en nokkru sinni og þar með baráttan fyrir réttlátu fiskveiðistjórnunarkerfi.

Hver og einn á val í lífi sínu og velur það sem samviskan bíður og það sem hann telur best fyrir sig,  fjölskyldu sína og hugsjónir sínar.  Karl V. Matthíasson hefur valið og ég virði það og óska honum alls hins besta á nýjum vettvangi.


Ég sækist eftir fyrsta sætinu

Byggjum saman nýtt og betra samfélag

 

Almannahagur - lýðræði - jafnrétti og réttlæti

Erfiðir tímar – endurreisn er nauðsynleg strax. 

Það eru aðeins tvö ár síðan ég bauð mig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar og var í framhaldinu kjörinn 2. þingmaður Norðvesturkjördæmis.  Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur mynduðu síðan ríkisstjórn um velferðarmál og efnahagsmál. 

Ég tók að mér formennsku í félags- og tryggingamálanefnd, auk þess að starfa í menntamála-  og fjárlaganefnd auk almennra þingstarfa.  Þessi tími hefur verið fljótur að líða. 

Umtalsverður árangur náðist á fyrsta ári ríkisstjórnarinnar. Í félags- og tryggingamálanefnd var gengið frá fjölda mála varðandi málefni barna og innflytjenda sem og í barnaverndarmálum.  Þá náðust fram umtalsverðar  breytingar á kjörum öryrkja og eldri borgara, þó margt verði að bæta í þeim málaflokkum.  Ný jafnréttislög voru afgreidd og sett lög um frístundabyggð svo eitthvað sé nefnt.  Ný lög um öll skólastigin voru afgreidd og fleira var í farvatninu. 

Áherslur Samfylkingarinnar voru sjáanlegar í öllum velferðar- og menntamálum, þó oft yrði að gera málamiðlanir milli ríkisstjórnarflokkanna.  Á sama tíma fór hins vegar efnahagsástandið versnandi, krónan veiktist, vextir hækkuðu og verðbólgan fór á fulla ferð.  Bankarnir réðu lítið við ofvöxt sinn og lánsfjárþurrð leiddi til stofnunar erlendra innlánsreikninga. Veikur gjaldmiðill og veikar varnir í regluverki stjórnmálanna og stofnana s.s. fjármálaeftirlits og Seðlabanka, auk græðgi eigenda bankanna ásamt ótrúlegum innri viðskiptum settu svo bankana endanlega á hausinn. 

Ég verð að bera ábyrgð á því og biðjast velvirðingar á að hafa ekki sinnt þessum málum, en fyrst og fremst einbeitt mér að velferðar- , mennta- og byggðamálum.   Mig langar að gefa kost á mér til að bæta um betur og taka þátt í endurreisn íslensks samfélags, þar sem ný gildi samvinnu og jafnaðarmennsku verða leiðarljósin.  Samfylkingin axlaði ábyrgð með því að gefa þjóðinni kost á að kjósa og hreinsa til í Fjármálaeftirliti og Seðlabankanum, viðskiptaráðherrann hætti og síðan var skipt um forystu þar sem Jóhanna Sigurðardóttir varð okkar forsætisráðherraefni.  

 

Jöfnum kjörin – verjum börn, fjölskyldur og heimili 

 

Í þeim hremmingum sem við erum í er mikilvægast að verja heimilin, börnin og fjölskyldurnar frá langvarandi fjárhagserfiðleikum og fátækt.  Forgangsraða þarf þannig að byrðunum verði jafnað á milli fólks, svo að allir leggi sitt af mörkum til að endurreisa samfélagið.  Gæta þarf þess að ekki halli áfram á byggðir landsins í samkeppninni við höfuðborgina í þessu fári.  Hjálpa þarf fyrirtækjum sömuleiðis út úr þeirra erfiðleikum og gera allt til að sporna við þeirri bölvun sem atvinnuleysið getur orðið.  Sitja þarf um hvert tækifæri til að liðka til svo hjólin fari að snúast að nýju.  Gæta þarf þess að fjármála- og atvinnulífið verði endurreist með bættum leikreglum og siðferði. 

Þjóðin þarf að endurmeta stöðu sína í alþjóðasamfélaginu og leita leiða til öðlast stöðugleika, afnema verðtryggingu og lækka vexti, en ég tel þetta helst verða gert með aðildarumsókn um ESB og upptöku Evru.  Skilgreina þarf samningsmarkmiðin, sækja um og ef viðunandi samningar nást að leggja þá fyrir þjóðina til samþykktar eða synjunar.  Gæta þarf að auðlindum okkar s.s. sjávarauðlindinni og nýtingu hennar og sömuleiðis mikilvægi íslensks landbúnaðar í þessari umræðu.

Uppbyggingarstarfið er hafið með nýrri ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og stefnan tekin upp á við.  Fjöldi verkefna bíður úrlausna, en hægt og bítandi miðar í rétta átt.  Engin ein leið er fær, vinna þarf að málum með fjölbreyttum úrræðum.  Greiðsluaðlögun, nýting séreignasparnaðar, frysting lána, breyting  á gjaldþrotalögum og full endurgreiðsla vsk við framkvæmdir eru meðal úrræða.  Viðamiklar tillögur ríkisstjórnar Samfylkingar og VG til að skapa atvinnu voru kynntar í dag en meira þarf til.  Brýnust verkefnin sem enn á eftir að leysa er að ná gengi á íslensku krónuna og afgreiða myntkörfulánin, en ekki síður að ákveða hvernig farið verður með verðtryggðu lánin sem hafa rokið upp með alltof hárri verðbólgu.Það eru krefjandi verkefni framundan sem ég er tilbúinn að takast á við, ef ég fæ umboð ykkar, ágætu kjósendur, í prófkjörinu sem nú stendur og í framhaldi í kosningunum í vor.

Takið þátt – hafið áhrif.
Guðbjartur Hannesson alþingismaður Samfylkingarinnar 

Tryggjum Guðbjarti fyrsta sætið

 

Hér er grein eftir Sigurð Arnar Sigurðsson

Tryggjum Guðbjarti fyrsta sætið


Næsta síða »

Höfundur

Guðbjartur Hannesson
Guðbjartur Hannesson

Nú er tækifæri til að breyta og bæta

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband